Málþing um eignarhald og áhættutöku orkufyrirtækja
Stýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi um eignarhald orkufyrirtækja og áhættutöku sem tengist rekstri þeirra. Málþingið verður haldið föstudaginn 26. nóvember kl. 13:30-15:30 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, stofu 132. Sérstakur gestur málþingsins er Einar Hope, prófessor emeritus við norska viðskiptaháskólann í Bergen, en Einar er sérfræðingur á sviði orkuhagfræði. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Staður:
Askja, náttúrufræðahús Háskóla Íslands, stofa 132
Stund:
Föstudagur 26. nóvember kl. 13:30-15:30
Stýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi um eignarhald orkufyrirtækja og áhættutöku sem tengist rekstri þeirra.
Sérstakur gestur málþingsins er Einar Hope, prófessor emeritus við norska viðskiptaháskólann í Bergen og sérfræðingur á sviði orkuhagfræði.
Dagskrá:
- Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Stefna stjórnvalda varðandi eignarhald á orkufyrirtækjum. - Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræðum við HÍ.
Starf stýrihóps um heildstæða orkustefnu. - Gunnar Tryggvason, ráðgjafi hjá KPMG.
Samanburður á þróun eignarhalds orkufyrirtækja á Íslandi og í nágrannalöndunum. - Einar Hope, prófessor emeritus við norska viðskiptaháskólann í Bergen.
Ownership, liberalisation and competition.
Fyrirlesturinn verður á ensku.
- Pallborðsumræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Helga Barðadóttir, sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti.
Ókeypis aðgangur, allir velkomnir.