Fjárreiður fangelsisins að Kvíabryggju kannaðar
Fangelsismálastofnun hefur vakið athygli dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins á aðfinnslum sem hún hefur gert við fjárreiður og bókhald fangelsisins að Kvíabryggju. Ráðuneytið hefur rætt málið við forstöðumann fangelsisins og hefur hann í framhaldi óskað eftir því að Ríkisendurskoðun verði falið að fara yfir bókhaldið. Á meðan á þeirri skoðun stendur hefur forstöðumanninum verið veitt lausn frá störfum um stundarsakir á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.