Styrkir til grunnnáms í listdansi
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla.
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda og skólagjöld.
- Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins.
- Umsóknarfrestur er til 31. desember 2010.