Styrkveitingar til fagfélaga kennara 2010
Á árinu 2010 varð breyting á fyrirkomulagi við styrkveitingar ráðuneytisins til fagkennarafélaga með það að markmiði að gera verklag skýrara.
Á árinu 2010 varð breyting á fyrirkomulagi við styrkveitingar ráðuneytisins til fagkennarafélaga með það að markmiði að gera verklag skýrara. Öllum fagkennarafélögum á grunn- og framhaldsskólastigi voru sendar umsóknarreglur. Félögin fengu frest til 1. september 2010 til þess að senda inn umsóknir ásamt starfsáætlun félagsins fyrir skólaárið 2010-11 og bárust umsóknir frá 39 fagkennarafélögum.
Kennslugreinar og þar með fagkennarafélög voru flokkuð í efnisflokka og hafði hver málaflokkur möguleika á að sækja um allt að kr. 450 þús. fyrir skólaárið 2010-11 og skiptist upphæðin milli umsækjenda viðkomandi efnisflokks.
Í síðasta lagi 1. júlí 2011 þarf ráðuneytinu að berast lokaskýrsla fyrir starfsárið 2010-11. Í henni skal birta yfirlit yfir ráðstöfun styrkjarins. Ef lokaskýrsla hefur ekki borist á réttum tíma fellur niður styrkjamöguleiki næsta árs. Formaður félags er ábyrgðarmaður umsóknar.
Meðfylgjandi er listi yfir styrkveitingar vegna skólaársins 2010-11:
Flokkar kennslugreina | Umsóknir hafa borist | Styrkur |
Bygginga- og mannvirkjagreinar | Verkmennt - félag kennara í byggingagreinum | 450.000 |
Farartækja- og flutningsgreinar, málm,- véltækni- og framleiðslugreinar og sjávarútvegs- og siglingagreinar | Félag kennara í málmiðngreinum | 450.000 |
Heimilisfræði, matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar | Félag framhaldsskólakennara í matvæla- og veitingagreinum | 450.000 |
Rafiðngreinar | Félag kennara í rafiðngreinum | 450.000 |
Snyrtigreinar | Félag hársnyrtikennara | 450.000 |
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar | Félag kennara í bókiðngreinum | 450.000 |
Lífsleikni | Félag lífsleiknikennara í framhaldsskólum | 450.000 |
Listnám, myndlist, listdans, tónlist og leiklist | 1. Félag íslenskra myndlistarkennara | 150.000 |
2. Tónmenntakennarafélag Íslands | 150.000 | |
3. Félag um leiklist í skólastarfi | 150.000 | |
Hönnunar- og handverksgreinar | 1. Félag íslenskra smíðakennara | 90.000 |
2. Félag textílkennara | 90.000 | |
3. FATEX - félag fata- og textílkennara | 90.000 | |
4. Félag íslenskra vefnaðarkennara | 90.000 | |
5. FÍKNF - félag ísl. kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt | 90.000 | |
Sértæk námsúrræði, nemendur með fötlun | 1. Félag íslenskra sérkennara | 225.000 |
2. Félag talkennara og talmeinafræðinga | 225.000 | |
Enska | 1. Félag enskukennara | 225.000 |
2. Stíl - Samtök tungumálakennara á Íslandi | 225.000 | |
Norðurlandamál | 1. Félag norsku- og sænskukennara | 225.000 |
2. Félag dönskukennara | 225.000 | |
3. mál | 1. Félag frönskukennara | 112.500 |
2. Ísbrú - félag kennara sem kenna íslensku sem erlent mál | 112.500 | |
3. Félag spænskukennara á Íslandi | 112.500 | |
4. Félag þýskukennara | 112.500 | |
Íslenska | Samtök móðurmálskennara | 450.000 |
Samfélagsgreinar, uppeldis- og tómstundagreinar | 1. Félag kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum | 112.500 |
2. Félag heimspekikennara | 112.500 | |
3. Samtök sálfræði- og uppeldisfræðikennara | 112.500 | |
4. Félag félagsfræðikennara | 112.500 | |
Náttúrufræði | 1. Félag raungreinakennara | 195.000 |
2. Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi, | 60.000 | |
3. Samlíf - Samtök líffræðikennara | 195.000 | |
Stærðfræði | Flötur, samtök stærðfræðikennara | 450.000 |
Upplýsinga- og tæknimennt | Félag um upplýsingtækni og menntun 3F | 450.000 |
Viðskiptafræði, hagræði, verslunar- og skrifstofugreinar | Samtök kennara í viðskipta- og hagfræðigreinum | 450.000 |
Annað | 1. Samstarfshópur bókasafnsfræðinga | 150.000 |
2. Félaga náms- og starfsráðgjafa | 150.000 | |
3. Félag fagfólks í skólasöfnum | 150.000 | |
Samtals | 9.000.000 |