Umhverfisráðherra afhenti Sólborg Grænfánann
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti nýverið leikskólanum Sólborg í Reykjavík Grænfánann. Nú taka tæplega 200 skólar á öllum skólastigum þátt í verkefninu Skólar á grænni grein (Eco-Schools) og af þeim flagga 110 skólar Grænfánanum. Eco-Schools var stofnað af samtökunum Foundation for Environmental Education árið 1994 og hefur Landvernd verið aðili að verkefninu frá árinu 2000. Þetta er því tíunda skólaár Grænfánaverkefnisins hér á landi.
Sérstaða í starfi Sólborgar felst í sameiginlegu uppeldi og menntun fatlaðra og ófatlaðra barna og á þremur stofum leikskólans dvelja heyrnalaus og heyrnaskert börn ásamt heyrandi börnum. Umhverfisráðherra afhenti því Grænfánann á táknmáli.