Hoppa yfir valmynd
14. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lokaráðstefna Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun

Haldin verður lokaráðstefna Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 17. desember. Kynnt verða verkefni og rannsóknir sem efnt hefur verið til á árinu.

Evrópuárið 2010 er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Ísland hefur tekið fullan þátt í verkefninu. Árinu fer senn að ljúka en vinnan heldur áfram. Á lokaráðstefnunni verða kynnt mörg þeirra verkefna og rannsókna sem hefur verið ýtt úr vör á árinu. en fjöldi styrkja var veittur til baráttunnar. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

Dagskrá 

13:00-13.05 Fundarstjóri setur ráðstefnuna, Edda Jónsdóttir.
13.05-13.15 Ávarp félags- og tryggingamálaráðherra, Guðbjartur Hannesson.
13.15-13.30  Niðurstöður fundar með þjóðfundarsniði um fátækt og félagslega einangrun. Linda Rós Alfreðsdóttir og Bjarni Snæbjörn Jónsson.
13.30-13.45  Líðan og staða atvinnulausra á tímum efnahagsþrenginga, Ása Ásgeirsdóttir.
13.45-13.55 „Við byggjum brýr....“ Málfríður D. Gunnarsdóttir.
13.55-14.10

Fátækt og félagslegar aðstæður öryrkja.

Rannveig Traustadóttir, prófessor við Háskóla Íslands.

14.10-14.20 Áhrif starfsendurhæfingar, Kristján Már Magnússon.
14.20-14.30 Þar sem flestir öryrkjar búa, Guðrún Kristín Þórsdóttir.
14.30-14.40 Stuttmynd í tilefni Evrópuársins 2010.
14.40-14.55 Kjarnakonur, Kristín Einarsdóttir.
14.55-15.20 Kaffi.
15.20-15.30

Sjálfstyrking kvenna,

Ragnheiður Elfa Arnardóttir og Berglind Ásgeirsdóttir.

15.30-15.45 Taktu þátt – sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir pólska karlmenn, Joanna Ewa Dominiczak.
15.45-16.00 Yrkja. Atli Lýðsson, fræðslustjóri Eflingar stéttarfélags.
16.00-16.15

Stuðningur frá grasrótinni, Velferðarsjóður á Suðurnesjum,

Hjördís Kristinsdóttir.

16.15-16.25 Andrea Sif Jónsdóttir Hauth flytur erindi.
16.25-17.00 Ráðstefnulok og veitingar frá Mömmueldhúsi.

Fundarstjóri er Edda Jónsdóttir, dagskrágerðarkona.
Myndasýningin er eftir Sigurbjörgu Öldu Guðmundsdóttur.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta