Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku vorið 2011
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða
framhaldsskólastigi.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða
framhaldsskólastigi. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.
Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.
Umsækjandi skal veita mennta- og menningarmálaráðuneyti upplýsingar um markmið námsins, kennslustundafjölda, kennslutíma, fjölda námskeiða, fjölda þátttakenda og námskeiðskostnað.
Aðilar sem bjóða upp á fleiri en fimm námskeið skila aðeins inn einu umsóknareyðublaði, en því skal fylgja sundurliðað yfirlit þar sem fram koma upplýsingar um hvert námskeið og heildarfjölda námskeiða, heildarfjölda þátttakenda, samanlagðan nemendastundafjölda, áætlaðan kostnað og heildarupphæð sem sótt er um.
Að námskeiði loknu, áður en til lokagreiðslu styrks kemur og eigi síðar en 15.júní 2011, ber að senda inn lista með nöfnum og kennitölum nemenda sem sóttu námskeiðin og ber þá að taka mið af þeim sem mættu í 75% kennslustunda að lágmarki. Fækki námskeiðum, eða þátttakendum á námskeiðum, frá því sem upphaflega var áætlað skerðist styrkurinn hlutfallslega sem nemur fækkuninni.
Ráðuneytið hefur eftirlit með gæðum námskeiðahaldsins og áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námskeiða. Þar með taldar eru upplýsingar um reikningshald, fjármögnun, greiðslur nemenda og viðveruskráningu, sem og upplýsingar um kennara, menntun þeirra og starfsreynslu og það námsefni sem stuðst er við.
- Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
- Umsóknir skal senda á [email protected].
- Eyðublað - umsókn um styrk til að halda námskeið í íslensku
- Reglur um úthlutun styrkja til íslenskukennslu fyrir útlendinga vorið 2011
- Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2011.