Hoppa yfir valmynd
16. desember 2010 Utanríkisráðuneytið

Lokið við gerð alþjóðasamnings um leit og björgun á norðurslóðum

hopmyndÁ fundi aðildarríkja Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Reykjavík 14.-16. desember., var lokið gerð alþjóðasamnings um samstarf við leit og björgun á hafi og í lofti á norðurslóðum. Fundinn sóttu um 50 sérfræðingar frá Bandaríkjunum, Danmörku fyrir hönd Færeyja og Grænlands, Finnlandi, Íslandi, Kanada, Noregi, Rússlandi og Svíþjóð, auk fulltrúa Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, en unnið hefur verið að gerð samningsins undanfarið ár.

Talið hefur verið brýnt að bregðast við aukinni fyrirsjáanlegri umferð á hafi og í lofti og annarri starfsemi á norðurslóðum, m.a. vegna loftslagsbreytinga, og aukinni hættu á slysum sem þar af leiðir. Í hinum nýja samningi eru afmörkuð leitar- og björgunarsvæði sem hvert ríkjanna átta bera ábyrgð á og kveðið á um skuldbindingar þeirra og samstarf við leitar- og björgunaraðgerðir.

Samningurinn er sögulegur þar sem um að ræða fyrsta alþjóðasamninginn milli hinna átta aðildarríkja Norðurskautsráðsins. Er hér á ferðinni mikilvægt fordæmi og vísir að frekari samningsgerð og nánu samstarfi milli ríkjanna undir hatti ráðsins. Gerð samningsins fellur vel að stefnu íslenskra stjórnvalda í norðurslóðamálum en þau hafa lagt mikla áherslu á að efla Norðurskautsráðið sem meginsamstarfsvettvanginn fyrir málefni norðurslóða.

Samningurinn um leit og björgun á norðurslóðum verður undirritaður á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins í Nuuk á Grænlandi í maí nk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta