Guðmundur Eiríksson afhendir trúnaðarbréf í Singapúr
Guðmundur Eiríksson sendiherra afhenti í dag, 30. desember 2010, Sellapan Ramanathan forseta Lýðveldisins Singapúr trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Singapúr með aðsetur í Nýju Delí.
Að athöfninni lokinni ræddu forsetinn og sendiherrann almennt um samskipti ríkjanna, þar á meðal um möguleika á að auka gagnkvæm viðskipti.