Innanríkisráðuneytið tekur til starfa 1. janúar 2011
Innanríkisráðuneytið, sem tekur til starfa 1. janúar 2011 með samruna dómsmála- og mannréttindaráðuneytis annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis hins vegar, var kynnt á blaðamannafundi í dag ásamt velferðarráðuneytinu.
Innanríkisráðuneytið, sem tekur til starfa 1. janúar 2011 með samruna dómsmála- og mannréttindaráðuneytis annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis hins vegar, var kynnt á blaðamannafundi í dag ásamt velferðarráðuneytinu.
Ögmundur Jónasson er innanríkisráðherra og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri hins nýja ráðuneytis. Ráðherra til aðstoðar eru þau Einar Árnason og Halla Gunnarsdóttir.
Málaflokkar
Helstu málaflokkar ráðuneytisins eru dómsmál, lögreglumál, öryggismál, samgöngumál, mannréttindamál, sveitarstjórnarmál, kosningamál, málefni útlendinga, fjölskyldumál, trúmál og málefni þjóðkirkjunnar, samskiptamál (póst- og fjarskiptamál) og neytendamál. Samkvæmt fjárlögum renna rúmir 59 milljarðar króna til verkefna ráðuneytisins og stofnana þess á árinu 2011.
Markmið
Markmiðið er að í innanríkisráðuráðuneytinu verði byggt á nýrri stefnumótun, nýju skipulagi, og samhæfingu á málsmeðferð og verkferlum. Skipulagi og skrifstofuskipan ráðuneytisins er því breytt allnokkuð frá fyrri ráðuneytum og hafa sumir málaflokkar þeirra verið sameinaðir. Starfsmenn innanríkisráðuneytisins eru alls 75.
Breytingarnar eru liður í þeirri endurskipulagningu stjórnkerfisins með sameiningu ráðuneyta og stofnana sem ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni. Markmið endurskipulagningarinnar er að tryggja öfluga þjónustu til framtíðar með sterkum stjórnsýslueiningum og stofnunum.
Ráðherrar og ráðuneytisstjórar kynntu nýju ráðuneytin á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag. F.v. Ragnhildur Hjaltadóttir, Ögmundur Jónasson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðbjartur Hannesson og Anna Lilja Gunnarsdóttir.
Sterkari eining
Innanríkisráðuneytið verður stærri og sterkari eining og betur í stakk búin til að veita borgurunum þjónustu, hafa eftirlit með umsvifamiklum stofnunum og fylgja eftir uppbyggingu öflugri stjórnsýslumiðstöðva í tengslum við eflingu og þróun sveitarstjórnarstigsins. Nýtt og öflugt innanríkisráðuneyti hefur alla burði til að endurskipuleggja þjónustu og forgangsraða með nýjum hætti og nýta fjármuni betur. Á næstunni verður unnið að stefnumótun fyrir hið nýja ráðuneyti.
Með þessari breytingu á Stjórnarráðinu er stigið stórt skref í þeim stjórnkerfisbreytingum sem verið hafa á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar frá 2009.
Alls heyra kringum 70 stofnanir og embætti undir innanríkisráðuneytið og verður á næstu vikum og mánuðum haldið áfram undirbúningi aukinnar samvinnu og samruna stofnana.
Skipulag
Starfsemi innanríkisráðuneytisins er skipt upp í sex skrifstofur og er skipulag ráðuneytisins sem hér segir:
- Skrifstofa stefnumótunar og þróunar
- Skrifstofa fjármála og rekstrar
- Skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu
- Skrifstofa almannaöryggis
- Skrifstofa mannréttinda og sveitarfélaga
- Skrifstofa innviða
Starfsmenn ráðuneytanna hafa unnið að undirbúningi breytinganna frá því að Alþingi samþykkti breytingar á lögum nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands í september síðastliðnum. Hafa ráðuneytisstjórar stýrt þeirri vinnu í samráði við ráðherra og sex vinnuhópar unnu að einstökum þáttum.
Aðsetur
Innanríkisráðuneytið verður til húsa við Sölvhólsgötu 7 í Reykjavík. Starfsemi ráðuneytisins verður þó fyrst um sinn í húsnæði fyrri ráðuneyta, annars vegar við Skuggasund og hins vegar í Hafnarhúsinu. Gert er ráð fyrir að starfsemin verði öll sameinuð um mánaðamótin febrúar-mars.
Símanúmer, netfang og vefsíða innanríkisráðuneytisins frá 1. janúar 2011:
- Aðalnúmer innanríkisráðuneytisins er: 545 9000
- Erindi send innanríkisráðuneytinu í tölvupósti skal senda á netfangið: [email protected]
- Bréfpóstur til ráðuneytisins skal merktur: Innanríkisráðuneytið, Skuggasundi, 150 Reykjavík
- Vefsíða ráðuneytisins er: www.innanrikisraduneyti.is