Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum
Mánudaginn 13. desember 2010 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2011.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) og á öðrum pottaplöntum, (0602.9093). Annað þessara tilboða reyndist ekki uppfylla útboðsskilyrði og var því vísað frá.
Eitt gilt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 500 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk. Hæsta boð var 109 kr./stk. en lægsta boð var 109 kr./stk.
Eitt gilt tilboð barst um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 500 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk. Hæsta boð var 109 kr./stk. en lægsta boð var 109 kr./stk.
Ein umsókn barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk., sem er sama magn og í boði var. Úthlutað var án útboðs.
Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 85.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar – júní 2011
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
500 | Grænn Markaður ehf |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2011
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
500 | Grænn Markaður ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2011
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
9.000 | Samasem ehf |
Afskorin blóm janúar – júní 2011
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
35.000 | Grænn Markaður ehf |
50.000 | Samasem ehf |
Reykjavík, 29. desember 2010
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið