Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2011 Forsætisráðuneytið

Merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli

Merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli
Merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli

Á nýársdag rann upp afmælisár Jóns Sigurðssonar forseta en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811.  Afmælisins  verður minnst með margvíslegum hætti allt árið en merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli 30. desember s.l. markar upphaf afmælishaldsins.

Það eru forsætisráðuneytið og Listasafn Einars Jónssonar sem standa að merkingunni að tillögu afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar.

Merkingin er koparplata á bakhlið fótstalls styttunnar með eftirfarandi texta:

JÓN SIGURÐSSON FORSETI
17.6.1811 - 7.12.1879
Leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld.

Styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn“ gerði Einar Jónsson 
myndhöggvari í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 191.

Íslendingar austanhafs og vestan gáfu styttuna.  Hún var reist við Stjórnarráðshúsið 1911 en flutt á Austurvöll 1931.

JÓN SIGURÐSSON
Leader of Iceland´s independence movement.

Sólveig Pétursdóttir formaður afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar og  Júlíana Gottskálksdóttir forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar voru viðstaddar merkinguna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta