Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2011 Matvælaráðuneytið

Nýjar áherslur í ferðamálastarfi Íslands, Grænlands og Færeyja

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og ferðamálaráðherrar Færeyja og Grænlands undirrituðu samstarfssamning landanna á sviði ferðamála í lok desember s.l. Heildarupphæð samningsins er 40 millj. kr. miðað við gengi dagsins í dag.

Megináherslan í samningnum er sem fyrr áhersla á eflingu ferðaþjónustu í löndum þremur
en stefnubreyting er fólgin í því að styrkja skuli fremur ferðalög á milli landanna þriggja en
að kynna þau úti í heimi sem eina heild.

Þess vegna er hluta af samningsfénu ætlað að styrkja ferðir skólahópa á milli landanna til að auka samstarf skóla og bæta þekkingu á löndunum hjá ungu fólki. Tilgangurinn er einnig að styrkja samgöngur á milli landanna, ferðaþjónustu utan sumartímans og að skólasamstarfið nái til sem flestra svæða í löndunum.

Gert er ráð fyrir að 25% af samningsfénu nýtist til að styrkja skólasamstarf eða annað samstarf sem eflir innbyrðis kynni í löndunum þremur.

Í samstarfinu er lögð áhersla á að fjölga kaupendum og alþjóðlegum fjölmiðlum á Vestnorden ferðakaupstefnunni sem löndin skiptast á að halda.

Samninginn má sjá hér:

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta