Innanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnu umréttindaskrá Evrópusambandsins
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnu um réttindaskrá Evrópusambandsins, sem haldin var af Mannréttindastofnun HÍ, lagadeild HR og Mannréttindaskrifstofu Íslands, í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag, 28. janúar.
Í ávarpi sínu vék ráðherra meðal annars að því að mannréttindi eiga að vera allra, ekki fárra og að markmiðið sé að allir geti búið við sömu réttindi og lifað lífi sínu með reisn.
Ávarpið, sem má sjá hér á vefnum, var flutt á ensku.
Talað orð gildir.