Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti minnkar milli ára

Hreindýr
Hreindýr

Heimilt verður að veiða 1.001 hreindýr í ár samkvæmt ákvörðun umhverfisráðuneytisins að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrustofu Austurlands. Heimilt var að veiða 1.272 dýr á liðnu ári. Helsta ástæða þess að kvóti minnkar milli ára er að færri dýr fundust við talningu á Fljótsdalsheiði (svæði 2).

Líkt og undanfarin ár er tarfaveiði heimil frá og með 15. júlí til og með 15. september en þó með þeim fyrirvara að fram til 1. ágúst séu tarfar ekki veiddir ef þeir eru í fylgd með kúm eða ef veiðar trufla kýr og kálfa í sumarhögum.Veiði á kúm er heimil frá og með 1. ágúst til og með 20. september. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Í ár verður heimilt að veiða fleiri tarfa en í fyrra en færri kýr.

Óheimilt verður að veiða kálfa á komandi veiðitímabili. Undanfarna vetur hafa verið lítil afföll af kálfum og því eru lífslíkur móðurlausra kálfa taldar þokkalega góðar.

Gjald fyrir hreindýraveiðileyfi hefur verið hækkað frá fyrra ári. Nánari upplýsingar um kvóta og verð má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta