Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Leiðrétting frá fjármálaráðuneytinu vegna greinar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Í grein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formanns Framsóknarflokksins, í Morgunblaðinu 2. febrúar sl. segir eftirfarandi:

[5.] “Landsbankinn telur heildsölulán  (innstæður sveitarfélaga, stofnana osfrv.) ekki til forgangskrafna. Glitnir flokkar þau hins vegar sem forgangskröfur. Ef Landsbankinn tapar yfirstandandi málaferlum vegna þessa bætast yfir 170 milljarðar, á Seðlabankagengi, við kröfurnar og hvað ætli það verði mikið ef krónan fellur? “

Fjármálaráðuneytið vill koma því á framfæri að hið rétta er að slitastjórn Landsbankans hefur viðurkennt forgang heildsöluinnlána að fjárhæð um 145 milljarðar króna.

Í mati samninganefndar Íslands á kostnaði við Icesave-samninginn hefur ætíð verið miðað við að þessi innlán yrðu flokkuð sem forgangskröfur. Einnig er rangt í umræddri grein að Glitnir flokki þessar kröfur sem forgangskröfur, það hefur slitastjórn hans einmitt ekki gert (gagnstætt slitastjórn Landsbankans). Þetta er því umdeilt lögfræðilegt álitaefni.

Færi svo, að dómstólar kæmust að þeirri niðurstöðu að þessar kröfur nytu ekki forgangs líkt og almenn innlán, myndi það þýða að heimtur upp í forgangskröfur myndu aukast og þar með yrði kostnaður ríkisins vegna samningsins og að meðtöldum vöxtum enginn, sé miðað við forsendur samninganefndarinnar.

 Kostnaðarmat samninganefndarinnar miðar við óhagstæðustu niðurstöðu um þetta álitaefni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta