Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2011 Matvælaráðuneytið

Metfjöldi erlendra ferðamanna í janúar

Vetrarferð á jökul
Vetrarferð á jökul

Erlendir gestir hafa aldrei verið jafn margar í janúar og í ár, frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð. Um 22 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.500 fleiri brottfarir en á árinu 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 18,5% í janúarmánuði á milli ára.

Fjölgun frá öllum markaðssvæðum
Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá fjölgun frá þeim öllum. Um þúsund fleiri Norðurlandabúar fóru frá landinu í janúar en í sama mánuði árið 2010 og sama má segja um N.-Ameríkana og gesti frá Mið- og S-Evrópu. Þúsund fleiri gestir frá hvoru markaðasvæði fyrir sig fóru um Leifsstöð í janúarmánuði í ár.

Fleiri Íslendingar fara utan
Umtalsvert fleiri Íslendingar fóru utan í janúar í ár en í fyrra, 22.700 fóru utan í ár, tæplega þrjú þúsund fleiri en árinu áður þegar tæplega 20 þúsund Íslendingar fóru utan. Aukningin nemur 14,2% á milli ára.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta