Olli Rehn heitir tæknilegri aðstoð við afnám hafta
Olli Rehn, framkvæmdastjóri efnahags- og gjaldeyrismála hjá Evrópusambandinu, og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, funduðu í Brussel í dag í tilefni af nýútkominni skýrslu um þróun efnahagsmála á Ísland til ársins 2013. Að fundinum loknum svöruðu þeir fyrirspurnum fréttamanna.
Rehn lagði áherslu á að efnahagsáætlun Íslands væri á góðri leið og að jafnvægi hefði náðst í efnahagslífinu. Hann fagnaði því að samkomulag hefði náðst í deilu Íslendinga, Breta og Hollendinga um innistæðutryggingar vegna Icesave reikninganna og að meirihluti þingmanna hefði stutt það á Alþingi. Loks lýsti Rehn yfir ánægju með stefnu stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta og hét stuðningi framkvæmdastjórnar ESB við hana.
Árni Páll sagði það vera eitt lykilmarkmið umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu að fá aðild að Evrópska myntbandalaginu og taka upp evru sem gjaldmiðil. Hann fagnaði stuðningi Rehn við stefnu stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta og tilboði hans um tæknilega aðstoð í þeim efnum.
Hægt er að horfa á fréttamannafundinn í heild sinni á vef framkvæmdastjórnar ESB http://ec.europa.eu/avservices/player/streaming.cfm?type=ebsvod&sid=173632