Umsagnarfrestur um Orkustefnu fyrir Ísland framlengdur til 20. febrúar.
Fréttatilkynning nr 9/2011.
Síðari hluta árs 2009 skipaði iðnaðarráðherra stýrihóp til að vinna að heildstæðri orkustefnu fyrir Ísland. Vinna stýrihópsins er nú á lokasprettinum, en áður en gengið verður endanlega frá stefnunni gefst almenningi og hagsmunaaðilum kostur á að kynna sér lokadrögin og gera athugasemdir við þau.
Nú þegar hafa á annan tug umsagna borist frá einstaklingum og fyrirtækjum og stóð til að umsagnarfresturinn rynni út á miðnætti 9. febrúar.
Vegna fjölda áskoranna hefur umsagnarfresturinn verið framlengdur til 20. febrúar.
Drögin að orkustefnunni liggja frammi á vefsvæðinu www.orkustefna.is