Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2011 Matvælaráðuneytið

Útrásin er í dvala ... en innrásin í blóma!

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Nýliðinn janúarmánuður var metmánuður í komu ferðamanna til landsins og gefur það óneitanlega góð fyrirheit um gjöfult ferðamannaár. Um 22 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.500 fleiri brottfarir en á árinu 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 18,5% í janúarmánuði á milli ára.

Mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir efnahagslífið er gríðarmikið og fer sífellt vaxandi. Í því sambandi er athyglisvert að skoða tölur um fjölda ferðamanna s.l. 60 ár. Árið 1950 voru þeir tæplega 4.400 og síðan þá hefur fjöldi þeirra hefur tvö- til þrefaldast á hverjum áratug að undanskildum þeim áttunda.

Fjöldi ferðamanna 1950-2010    
2010 494.769
2000 302.900
1990 141.718
1980   65.921
1970   52.908
1960   12.086
1950     4.383

Jafnframt er athyglisvert að skoða þær atvinnugreinar sem skapa mestar gjaldeyri stekjur. Þar er ferðaþjónustan ein af hinum þremur stóru ásamt sjávaraútveginum og áliðnaðinum.

 

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta