„Aftur heim“ – nýja gufubaðið á Laugarvatni opnar í júní
Gufubað og Laugarvatn eru tengd saman órjúfanlegum böndum og í sumarbyrjun opnar gufubaðið á Laugarvatni aftur undir nafninu LAUGARVATN FONTANA – uppspretta vellíðunnar. Nýja gufubaðinu er líklega betur lýst sem glæsilegum baðstað með alls kyns aðstöðu til slökunar, upplifunar og afþreyingar fyrir Laugvetninga og þann mikla fjölda inlendra og erlendra ferðamanna sem sækja Laugarvatn heim. Nýja gufubaðið verður eins og áður byggt ofan á gufuhvernum og verður því áfram náttúrulegt gufubað. Byggingin er 750m2, með fyrsta flokks búningsherbergjum, veitinga- og þjónusturými auk baðsvæðisins sem er utandyra.
Verkefnið er að taka gömlu Gufuna lengra og gera að áfangastað sem eftirsóknarvert er að heimsækja allan ársins hring. Nýi baðstaðurinn skapar þannig tækifæri til aukinnar tekjumyndunar fyrir bæjarfélagið og íbúa svæðisins. Gert er ráð fyrir að það skapi 10 til 12 stöðugildi. Jafnframt stuðlar starfsemin að áframhaldandi vexti og þróun þjónustu við ferðamenn á Laugarvatni.
Móttökur ferðaþjónustunnar hafa verið mjög góðar enda frábær viðbót fyrir ferðamenn sem eru nýbúnir að dást að heitum hverum við Geysi að geta hreinlega sest ofan á einn slíkan!
Nánari upplýsingar á www.fontana.is