Skipað í samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks til ársloka 2014. Nefndin er skipuð í samræmi við ákvæði til bráðabirgða VI í lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992.
Hlutverk samráðsnefndarinnar er að vera velferðarráðherra og sveitarfélögum til ráðgjafar um málefni fatlaðs fólks, hafa umsjón með framkvæmd á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk til sveitarfélaganna, gera tillögur um breytingar á tilhögun yfirfærslunnar eftir því sem ástæða er til, stýra endurmati yfirfærslunnar og fjalla um vafamál og álitaefni sem upp kunna að koma. Ráðherra er heimilt að fela nefndinni frekari verkefni í tengslum við fyrirfærslu þjónustunnar. Nánar er fjallað um hlutverk samráðsnefndarinnar í 12. grein samkomulags ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá 23. nóvember 2010.
Samráðsnefndina skipa:
- Jónína Rós Guðmundsdóttir, skipuð af velferðarráðherra, formaður
- Hlynur Hreinsson, tilnefndur af fjármálaráðuneyti
- Guðni Geir Einarsson, tilnefndur af innanríkisráðuneytinu
- Gerður Aagot Árnadóttir, tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp
- Hrefna Karonina Óskarsdóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
- Björk Vilhelmsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Gyða Hjartardóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Jón Óskar Pétursson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga