Opnir málfundir......um vísinda- og nýsköpunarkerfið
Vísinda- og tækniráð efnir til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- ognýsköpunarkerfið á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfirskriftinni;Með gæði og ávinning að leiðarljósi.
Fyrsti fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. febrúar kl. 15-17 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. VEFSLÓÐ í BEINA ÚTSENDINGU
Hvers konar vísinda- og nýsköpunarkerfi þjónar Íslendingum best á 21. öldinni?
Hvernig hafa nágrannaþjóðir okkar aðlagað sig að áskorunum nýrrar aldarog hvað getum við lært af þeim breytingum sem þær hafa innleitt á síðustu árum?
Inngangserindi
Ilkka Turunen, aðalritari finnska Vísinda- og nýsköpunarráðsins.
Hans Müller Pedersen, aðstoðarframkvæmdastjóri Vísinda- og nýsköpunarmiðstöðvar Danmerkur.
Fundarstjóri: Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs.
Næsti málfundur
Hvernig útdeilum við opinberu fé til vísinda og nýsköpunar í því skyni að hámarka gæði og ávinning?
Miðvikudaginn 2. mars kl. 15-17 í Háskólanum í Reykjavík. Vefslóð í beina útsendingu fundarins