Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2011 Matvælaráðuneytið

Nýtt kísilver rís í Helguvík.

Undirritun kísilvlverssamnings í Helguvík
Undirritun kísilvlverssamnings í Helguvík

Fréttatilkynning nr 17/2011
Samningar hafa náðst um að kísilver rísi í Helguvík og voru fjárfestingarsamningar milli stjórnvalda, Reykjanesbæjar og Íslenska kísilfélagsins ehf. undirritaðir í dag. Einnig var gengið frá orkusamningi við HS Orku, hafnarsamningi við Reykjaneshöfn og viljayfirlýsingu um orkuflutninga við Landsnet. Loks var tilkynnt í dag um samninga  á milli Landsvirkjunar og Kísilfélagsins um sölu á orku til kísilversins.  Um er að ræða framleiðslu  á 40 þúsund tonnum af hrákísli. Kísilverið þarf 550 GWa af raforku til starfsemi sinnar eða sem svarar til 65 MW að jafnaði.  

Bandaríska fyrirtækið Globe Speciality Metals, Inc (NASDAQ:GSM),  einn stærsti framleiðandi í heimi af kísilmálmi og sérhæfðu kísilblendi, hefur ákveðið að fjárfesta í verkefninu og mun ráða yfir 85 % hluta í Kísilfélaginu, en 15 % verða áfram í eigu Tomahawk Development á Íslandi ehf.  Síðastnefnda félagið hefur  undanfarin fjögur ár stefnt að því að reisa kísilver í Helguvík. Íslenska kísilfélaginu var veitt starfsleyfi  á árinu 2009 á grundvelli umhverfismats sem lokið var 2008.  

Gert er  ráð fyrir að framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjist í byrjun sumars. Verksmiðjuhús munu rísa á 20 mánuðum og eru um 300 ársverk áætluð á framkvæmdatíma. Miðað er við að starfræksla kísilversins hefjist um mitt ár 2013. Um 90 manns  fá vinnu við verksmiðjuna til frambúðar og er þar um að ræða sérfræðinga af ýmsu tagi, iðnaðarmenn og ófaglærða.  Heildarfjárfesting í verkefninu nemur  110.000.000 Evra eða jafnvirði rúmlega 17 milljarða íslenskra króna.

Verkefnið  er fullfjármagnað án ríkisaðastoðar að þeim ívilnunum frátöldum sem veittar eru með fjárfestingarsamningum við íslenska ríkið og Reykjanesbæ.

Globe Speciality Metals Inc. er bandarískt fyrirtæki sem skráð er í NASDAQ kauphöllinni.  GSM framleiðir kísilmálma og kísilmálmblöndur í margvíslega iðnaðarstarfsemi. Fyrirtækið starfrækir fimm kísilver og kísilblendiver í Bandaríkjunum og eitt í Argentínu.  Í viðskiptamannahópi GSM eru meðal annarra framleiðendur á sólarrafhlöðum og örgjörvum, bílum, steypu , efnavöru, áli og stáli.   

Reykjavík 17. Febrúar 2011.

 

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta