Embætti héraðsdómara laust til setningar
Innanríkisráðuneytið hefur auglýst embætti héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur laust til setningar í 11 mánuði meðan á leyfi skipaðs dómara stendur.
Miðað er við að sett verði í embættið frá og með 1. apríl nk. til og með 29. febrúar 2012, að fenginni tillögu dómstólaráðs.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík, og á netfangið [email protected] eigi síðar en 7. mars nk.
Sjá auglýsingu hér að neðan.
Embætti héraðsdómara laust til setningar
Innanríkisráðuneytið, auglýsir laust til umsóknar embætti héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur til setningar, meðan á leyfi skipaðs dómara stendur, sbr. 2. mgr. 20. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.
Miðað er við að innanríkisráðherra setji í embættið frá og með 1. apríl nk. til og með 29. febrúar 2012, að fenginni tillögu dómstólaráðs.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Áskilið er að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilegir fyrirlestrar o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upplýsingar um þrjá fyrrverandi samstarfsmenn sem geta veitt bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi að faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Umsóknir óskast sendar til innanríkisráðuneytisins, Skuggasundi, 150 Reykjavík og á netfangið [email protected]. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum, er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga öll samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík, eigi síðar en 7. mars nk.
Innanríkisráðuneytinu,
18. febrúar 2011.