Ný norræn samstarfsáætlun í jafnréttismálum
Jafnréttisráðherrar norrænu ríkjanna hafa samþykkt samstarfsáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2011–2014 sem ber heitið Jafnrétti skapar sjálfbært þjóðfélag.
Í áætluninni er sérstaklega fjallað um nauðsyn þess að karlmenn taki þátt í jafnréttisstarfi og umræðum um jafnréttismál og að tekið sé tillit til jafnréttissjónarmiða á öllum sviðum samfélagsins. Með þetta að leiðarljósi verður áhersla lögð á virka þátttöku karla og drengja í jafnréttisstarfi og samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða fléttuð inn í öll verkefni sem kveðið er á um í samstarfsáætluninni.
Norrænt jafnréttisstarf er afar víðtækt og því hefur verið nauðsynlegt að þrengja og skerpa áherslur og aðferðir. Almenn forgangsmál í norrænu jafnréttisstarfi munu snúast um jafnrétti á vinnumarkaði, jafnrétti og menntun, jafnrétti og uppruna og leiðir til að útrýma kynbundnu ofbeldi.
Í norrænu jafnréttissamstarfi við Eystrasaltsríkin verður áhersla lögð á jafnrétti á vinnumarkaði, jafnréttisfræðslu, jafnrétti og jöfnuð og jafnrétti í fjölmiðlun.
Forgangsmál í norrænu jafnréttissamstarfi við Norðvestur-Rússland varða jafnréttisfræðslu og verkefni sem snúa að því að útrýma kynbundnu ofbeldi.
Samstarfsáætlunina er hægt að nálgast á slóðinni: