Þrjú embætti hæstaréttardómara laus til umsóknar
Þannig verði dómarar við Hæstarétt tólf talsins til að bregðast við því aukna álagi sem orðið hefur hjá dómstólum. Umsóknirnar verða sendar dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti og verður skipað í embættin hið fyrsta eftir að nefndin hefur skilað mati sínu.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík og á netfangið [email protected] eigi síðar en 14. mars nk.