Málþing: Daglegt líf, afkoma og aðstæður öryrkja
Öryrkjabandalag Íslands, velferðarráðuneytið, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða til málþings föstudaginn 25. febrúar kl. 13.00–16.00 á Grand hóteli í Reykjavík.
Á málþinginu er fjallað um niðurstöður nýrrar rannsóknar á aðstæðum og afkomu öryrkja á Íslandi, en í rannsókninni var lögð áhersla á að fá fram sjónarhorn og reynslu fólks á örorkubótum. Rannsóknin var unnin með styrk frá Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun. Ávörp flytja Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands, mun fjalla um niðurstöður rannsóknarinnar en einnig munu Knútur Birgisson og Eiríkur Smith hjá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum ræða um fjölskyldur öryrkja og birtingarmyndir öryrkja í fjölmiðlum. María Dröfn Þorláksdóttir og Friðfinnur Steingrímsson lýsa sinni reynslu. Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, ræðir síðan hvað ný neysluviðmið velferðarráðuneytisins merkja fyrir afkomu fólks. Í lokin verður boðið upp á pallborð með þátttöku frummælenda og opnað er á umræður og fyrirspurnir. Málþingsstjóri er Emil Thóroddsen, framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands.
Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis, en óskað er eftir að þátttakendur skrái sig á málþingið. Óskir um táknmálstúlkun eða ritmálstúlkun komi fram í skráningu.
Dagskrá málþingsins
- Ávarp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra.
- Ávarp Guðmundar Magnússonar, formanns Öryrkjabandalags Íslands.
- Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands.
Fátækt og félagslegar aðstæður öryrkja – helstu niðurstöður rannsóknar. - Friðfinnur Steingrímsson – reynslusaga.
- Knútur Birgisson, starfsmaður Rannsóknarseturs í fötlunarfræðum.
Fjölskyldur öryrkja og börn þeirra. - María Dröfn Þorláksdóttir – reynslusaga.
Kaffihlé kl. 14.30–15.00
- Eiríkur Smith, verkefnisstjóri á Rannsóknasetri í fötlunarfræðum.
Afætan, letinginn og lúxusöryrkinn: Um birtingarmyndir öryrkja í fjölmiðlum. - Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.
Neysluviðmið fyrir einstaklinga og fjölskyldur á Íslandi: Hvað þýðingu geta þau haft? - Pallborð með þátttöku frummælenda – umræður og fyrirspurnir.
Málþingsstjóri: Emil Thóroddsen, framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands.