Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2011 Matvælaráðuneytið

Ekkert mál að fá einkaleiðsögumann – þú hefur hann bara í vasanum!

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Ferðamenn sem vilja ferðast á eigin vegum en njóta engu að síður leiðsagnar um landið geta nú fengið ríkulega myndskreytta leiðsögn með fróðleik og kortum í gegnum Snjallsíma t.d. iPhone, iPad, iPod Touch og BlackBerry. Það er sprotafyrirtækið Locatify sem hefur þróað og markaðssett leiðsögukerfið Locatify Iceland og er leiðsögnin sótt yfir netið og höluð beint í símann. Síðan er hægt að njóta ferðarinnar án nettengingar með sögumanninn í símanum.

Locatify Iceland er til sölu á á netverslun Apple.  

Staðsetning (GPS) kemur af stað frásögnum á viðeigandi stöðum og sérhönnuð sögukort fylgja hverri ferð ásamt ljósmyndum sem birtast á skjánum. Einnig er aðgangur að Google Maps kortum með öllum leiðöngrunum. Í þessari fyrstu útgáfu er boðið upp á sex ferðir áSuðvesturhorni Íslands á allt að átta tungumálum - og fleiri ferðir og tungumál eru í farvatninu. 

Aðalferðin er Gullni hringurinn, heilsdagsferð þar sem snjallsögumaðurinn segir frá og leiðbeinir bæði í bílferðinni og í gönguferðum um Þingvelli, Geysi og víðar. Þar er sagt frá á 90 stöðum og myndir birtast um leið. Styttri og lengri ferðir eru í boði um Reykjavík, Hafnarfjörð og Borgarfjörð, þar sem áhersla er lögð á sérkenni hvers staðar fyrir sig. Víkingaarfleiðin er kynnt í samstarfi við Landnámssetið í Borgarnesi, í Hafnarfirði eru álfaslóðir kannaðar og í Reykjavík eru miðbæjarferðir og listaferð þar sem söfn og fallegir staðir innan borgarmarkanna eru skoðaðir.  

Locatify ehf er íslenskt sprotafyrirtæki stofnað haustið 2009. Forritið er hannað af Leifi Birni Björnssyni en Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir hefur haft yfirumsjón með efnisgerð.  

www.locatify.com    fyrir þá sem vilja vita meira    

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta