Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-desember 2010
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2010 liggur nú fyrir.
Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 73,7 ma.kr. en var neikvætt um 150,4 ma.kr. á sama tímabili 2009.
Tekjur reyndust um 47,3 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin drógust saman um 20,5 ma.kr. milli ára.
Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 95,4 ma.kr.
- Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-desember 2010 (PDF 113 KB)