Samúðarkveðjur til forsætisráðherra Nýja-Sjálands
Forsætisráðherra hefur sent samúðarkveðjur fyrir hönd ríkisstjórnar og íslensku þjóðarinnar til John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands. Hugur Íslendinga sé með Nýsjálendingum vegna manntjóns og annarra hörmulegra afleiðinga sem jarðskjálftinn í gær hefur haft í för með sér.