Breytingar á reglugerð um hrognkelsaveiðar
Nr. 6/2011
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 196/2009 um hrognkelsaveiðar. Samkvæmt þeim verður hvert leyfi nú gefið út til 50 daga í stað 62 áður og óheimilt er að hefja veiðar með yfirtöku hrognkelsaneta í sjó. Þetta hefur m.a. áhrif þar sem sami aðili er með fleiri en einn bát við hrognkelsaveiðar en samkvæmt breytingunni verður skylt að taka net úr sjó þegar leyfi rennur út og ganga frá merkingu neta í landi. Aðrar breytingar eru minniháttar, s.s. að nú er grásleppuútgerðum gert auðveldara að nota svokölluð lambamerki til merkinga á grásleppunetum, veiðisvæði hafa verið hnitasett og veiðisvæði F sem er fyrir Austurlandi verður opnað 15. mars í stað 10 mars áður.
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 196/2009, um hrognkelsaveiðar.