Breytingar á stjórn Bankasýslu ríkisins
Breytingar hafa orðið í stjórn Bankasýslu ríkisins. Fjármálaráðherra hefur skipað Steinunni Kristínu Þórðardóttur, rekstrarhagfræðing sem nýjan stjórnarmann og Jón Sigurðsson, lögmann, til vara. Fráfarandi stjórnarmaður er Sigurður B. Stefánsson sem hefur sinnt stjórnarstörfum frá því í september 2009 eða síðan stjórn Bankasýslunnar var fyrst skipuð. Eftir að viðræður hófust um kaup Landsbankans á sjóðastýringafyrirtækinu Rose Invest í nóvember, þar sem Sigurður er annar stofnanda og sjóðsstjóri, hefur hann ekki sinnt stjórnarstörfum fyrir Bankasýsluna.
Guðrún Johnsen, varamaður, sagði sig úr stjórn Bankasýslunnar þegar hún tók sæti í stjórn Arion banka á síðasta ári. Sigurði og Guðrúnu eru þökkuð vel unnin störf í þágu Bankasýslu ríkisins.
Allir stjórnarmenn uppfylla þau hæfnisskilyrði sem kveðið er á um í 6. gr laga nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins.