Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2011 Matvælaráðuneytið

Fimm styrkir til jarðhitaleitar á köldum svæðum

Orkuráð hefur veitt fimm styrki til jarðhitaleitar að upphæð samtals 25 milljónir króna en Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fól orkuráði úthlutunina. Megintilgangurinn með styrkjunum er að stuðla að enn frekari nýtingu jarðvarma til húshitunar í landinu með það að markmiði að bæta búsetuskilyrði og auka aðgengi að þeim gæðum og möguleikum sem nýting jarðhita hefur í för með sér, draga úr notkun jarðefnaeldsneytis til húshitunar, og jafnframt að draga út kostnaði ríkissjóðs vegna niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Styrkir eru veittir sveitarfélögum, fyrirtækjum eða einstaklingum.

Eftirtaldir fengu 5 milljóna króna styrk hver til jarðhitaleitar:

  •          Arnór Heiðar Ragnarsson, til framhaldsleitar í landi Hofsstaða í Reykhólahreppi.
  •          Hörgársveit, til leitar í Hörgárdal og Öxnadal í samstarfi við Íslenskar 
             orkurannsóknir og Norðurorku.
  •          Jón Svavar Þórðarson, til framhaldsleitar í landi Ölkeldu í Staðarsveit.
  •          Orkuveita Staðarsveitar, til framhaldsleitar á Lýsuhóli í Staðarsveit.
  •          Steinþór Tryggvason, til lokaáfanga jarðhitaleitar í landi Kýrholts í Viðvíkursveit í
             Skagafirði.

Búast má við að leit hefjist á þessum stöðum með vorinu.

Styrkirnir til jarðhitaleitar á köldum svæðum er veittir á grundvelli 16. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar. Umsjón jarhitaleitarstyrkjanna er hjá Orkusjóði en Orkuráð hefur úthlutun þeirra með höndum að ákvörðun ráðherra. Unnið er eftir úthlutunarreglum sem staðfestar hafa verið af iðnaðarráðherra.

Í Orkuráði starfa Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir. Framkvæmdastjóri Orkusjóðs er Jakob Björnsson.

Auglýst var eftir umsóknum um styrkina í nóvember 2010 og rann umsóknarfrestur út 31. desember. Sautján umsóknir bárust, samtals að upphæð 58,2 m.kr. Orkuráð afgreiddi umsóknirnar á fundi sínum 16. febrúar.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta