Lifandi auðlindir hafsins - langtíma stefnumótun og aflareglur
Ráðstefna um langtímastefnumótun fyrir nýtingu lifandi auðlinda hafsins verður haldin í Bíósal á Hótel Loftleiðum föstudaginn 25. febrúar nk. Hún hefst kl. 9:00 um morguninn og stendur til kl. 16:20. Ráðstefnan er haldin af Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og Hafrannsóknastofnuninni og titill hennar er „Lifandi auðlindir hafsins - langtíma stefnumótun og aflareglur“.
Alls munu 14 fyrirlesara fjalla um efnið frá ýmsum sjónarhornum. Þar á meðal verða tveir erlendir gestir, þeir Steve Murawsky frá NOAA í Bandaríkjunum sem mun fjalla um reynslu Bandaríkjamanna af mótun langtímastefnu við stjórnun fiskveiða og Paul Dengbol frá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) sem mun fjalla um aðkomu ICES að mótun aflareglna fyrir stjórn á nýtingu fiskistofna í Norður-Atlantshafi.
Allir eru velkomnir á ráðstefnuna meðan húsrúm leyfir.