Styrkur til námsdvalar í Litháen skólaárið 2011-2012
Stjórnvöld í Litháen bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms í Litháen námsárið 2011-2012. Styrkurinn er ætlaður námsmönnum, fræðimönnum eða kennurum til náms í litháísku eða baltneskum fræðum og er til 5-10 mánaða.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á eftirfarandi heimasíðu: http://www.smpf.lt/index.php?id=4025 og í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2011. Umsóknir skal senda til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum auk annarra fylgiskjala sem óskað er eftir (sjá upplýsingasíðu um styrkina).