Íslensk stjórnvöld styðja aðgerðir og ályktanir Sameinuðu þjóðanna gagnvart Líbíu
Íslensk stjórnvöld taka undir harðorða ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt var um helgina þar sem valdbeiting og mannréttindabrot stjórnvalda í Líbíu eru fordæmd, vopnasölubann sett á landið, svo og ákvæði um ferðabann og frystingu eigna Muammars Gaddafis, einræðisherra Líbíu í 42 ár. Sakamáladómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag var ennfremur falið að rannsaka árásir öryggissveita Gaddafis á íbúa landsins og ákvarða hvort þeir sem bera ábyrgð á morðum öryggissveitanna og öðrum mannréttindabrotum verði sóttir til saka.
Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, fordæmdi í liðinni viku harkalega framferði líbískra stjórnvalda gagnvart óbreyttum borgurum. Íslensk stjórnvöld hafa fylgt þessari fordæmingu eftir, m.a. með stuðningi við ályktun öryggisráðsins. Í utanríkisráðuneytinu er nú þegar hafin vinna að innleiðingu ályktunar öryggisráðsins hér á landi.
Ísland var einnig eitt þeirra ríkja sem fór fram á sérstakan fund í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf um ástandið í Líbíu og sem stóð að ályktun í mannréttindaráðinu sl. föstudag þar sem mannréttindabrot líbískra stjórnvalda eru fordæmd harðlega. Í ályktuninni eru brotin sögð vera á mörkum þess að vera glæpir gegn mannkyni og þrýst á líbísk stjórnvöld að stöðva þegar í stað frekari mannréttindabrot. Þau eru einnig hvött til að tryggja ferðafrelsi almennra borgara, þ.m.t. ríkisborgara annarra ríkja, opna fyrir internet- og símaaðgang, hætta hótunum, ofsóknum og handtökum á almennum borgurum án dóms og laga.
Mannréttindaráðið samþykkti að senda sérstaka rannsóknarnefnd til að rannsaka öll meint brot á alþjóðlegri mannréttindalöggjöf í Líbíu. Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna var ennfremur falið að skila mannréttindaráðinu munnlegri skýrslu um ástand mannréttindamála í Líbíu á fundi ráðsins, sem hefst í dag í Genf. Þá leggur mannréttindaráðið það til í lokamálsgrein ályktunarinnar að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hugleiði að gera Líbíu brottrækt úr mannréttindaráðinu.
Íslensk stjórnvöld hafa ennfremur tekið undir ákall Evrópusambandsins sl. fimmtudag um að þegar verði bundinn endi á ofbeldi gegn óbreyttum borgurum.