Opnir málfundir um vísinda- og nýsköpunarkerfið
Opnir málfundir um vísinda- og nýsköpunarkerfið
Vísinda- og tækniráð efnir til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- og
nýsköpunarkerfið á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfirskriftinni;
Með gæði og ávinning að leiðarljósi.
Þriðji málfundur Vísinda- og tækniráðs um vísinda- og nýsköpunarkerfið verður haldinn mið. 30. mars kl. 15-17 í Náttúrufræðistofnun Íslands.
Miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17 er boðað til næsta málfundar í Náttúrufræðstofnun Íslands, Urriðaholti, Garðabæ.
Slá menntakerfið, háskólar og rannsóknastofnanir taktinn með atvinnulífinu?
Inngangserindi:
Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands ehf.
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika
Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur, Samtökum iðnaðarins
Fundarstjóri: Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs
Að loknu málþingi verða fyrirlestrar aðgengilegrir á vefsíðu Vísinda- og tækniráðs
Næsti málfundur:
Þekkingaryfirfærsla - stíflur eða opnar gáttir? -verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl kl. 15-17.