Nýir útreikningar samninganefndar á kostnaði ríkssjóðs vegna Icesave
Skilanefnd Landsbankans fundaði í dag með kröfuhöfum í búi bankans í Lundúnum og kynnti nýtt mat á virði eigna búsins. Í ljósi nýja matsins hefur samninganefnd Íslands vegna Icesave-samninganna endurnýjað útreikninga sína á kostnaði ríkissjóðs vegna samninganna í ljósi nýs mats skilanefndar Landsbanka Íslands á heimtum eigna bús bankans. Jafnframt hefur verið tekið tillit til nokkurra annarra staðreynda sem hafa áhrif á tölulega framsetningu á kostnaði ríkissjóðs.
Meginniðurstaða hinna nýju útreikninga að áætlaður kostnaður ríkissjóðs vegna samninganna nemi 32 ma.kr. í stað 47 áður. Í fréttatilkynningu skilanefndar kemur fram einnig fram að mat á verðmæti eignasafns búsins hefur hækkað um tæplega 160 ma.kr. frá 30. apríl 2009 til ársloka 2010, en það samsvarar því að hækkunin hafi numið 23 ma.kr. á hverjum ársfjórðungi.
Breyttar forsendur fyrir útreikningum og nýju mati samninganefndarinnar eru eftirfarandi:
- Áætlaðar endurheimtur upp í forgangskröfur aukast og nema nú 89% af forgangskröfum. Í krónum talið nema áætlaðar heimtur 1.175 ma.kr. í stað 1.138 ma.kr. Hækkunin nemur því 37 ma.kr. Þar af yrði hlutur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) 51,26% og nemur aukning TIF því um 19 ma.kr.
- Fyrstu greiðslur (úthlutanir) úr búi Landsbankans miðast við 1. ágúst 2011 í stað 1. júní sem fyrri útreikningar byggðu á. Lítilsháttar tafir hafa orðið á meðferð héraðsdómsmála er varða stjórnskipulegt gildi neyðarlaga og er því talið varlegt að gera ráð fyrir því að greiðslur tefjist um tvo mánuði frá því sem áður var ætlað.
- Fyrsta greiðsla áfallinna vaxta TIF til innstæðusjóða Bretlands og Hollands miðast við apríl lok 2011 í stað janúar. Vegna betri vissu um reikningsforsendur lækka áfallnir vextir til ársloka 2010 um 2 ma.kr.
- Frá eign TIF dragast 1,5 ma.kr. sem fara í greiðslu samkvæmt sérstökum samningi um skiptingu vaxtakröfu í bú Landsbankans, sbr. kafla 3.2.1.4. í greinargerð með frumvarpinu.
- Samsetning eigna bús Landsbankans hefur breyst þannig að hærra hlutfall þeirra er nú í reiðufé og veðtryggðu skuldabréfi NBI, samtals um 677 ma.kr. en til samanburðar nam sambærileg fjárhæð 615 ma.kr. í því uppgjöri sem skilanefndin kynnti í lok þriðja ársfjórðungs 2010. Forsendur áætlana um heimtur eru því traustari en áður og óvissa hefur minnkað.
- Ákveðið hefur verið að Iceland Foods greiði hluthöfum sínum arð að fjárhæð 100 milljónir punda vegna síðasta árs sem samkvæmt upplýsingum skilanefndar mun að óbreyttu ekki hafa áhrif á verðmæti eigna búsins m.v. matið 31.desember 2010. Til upplýsingar er bætt inn í töflurnar nettó áhrifum þessarar arðgreiðslu á kostnað ríkissjóðs vegna samninganna.
- Eignir í íslenskum krónum hafa minnkað sem hlutfall af heildareignum og nema nú 8% af heildareignum. Skýrist það að mestu leyti af því að hlutabréf í NBI yfirfærast í skuld NBI við bú Landsbankans í evrum, pundum og dollar.
Að öðru leyti byggir endurskoðað mat á sömu forsendum og greindi í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 13/2011
Meðfylgjandi er greinargerð samninganefndar Íslands vegna Icesave-samninga í tilefni af nýju mati skilanefndar Landsbanka Íslands á heimtum eigna.