Orkumál og atvinnusköpun á Vestfjörðum
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra boðar til funda með Vestfirðingum
Mánudaginn 7. mars mun iðnaðarráðherra ásamt forstöðumönnum þeirra stofnana sem heyra undir ráðuneytið halda tvo opna fundi á Vestfjörðum. Sá fyrri verður í Félagsheimilinu á Patreksfirði og hefst hann kl. 12. Sá síðari verður á Ísafirði í Þróunarsetrinu og hefst kl. 15:30.
Á fundunum mun ráðherra kynna skýrsluna Orkuöryggi á Vestfjörðum – áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun. Í kjölfarið mun hver forstöðumannanna lýsa stuttlega þeim áherslum og verkefnum á Vestfjörðum sem tengjast þeirri stofnun sem hann/hún veitir forstöðu. Eftir framsögurnar mun gefast góður tími fyrir fyrirspurnir og umræður.
Fundirnir eru öllum opnir og eru Vestfirðingar hvattir til að fjölmenna.
Dagskrá fundanna:
Ávörp:
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
Guðni A Jóhannesson, orkumálastjóri
Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar
Ólöf Ýr Atladóttir, ferðamálastjóri
Þorsteinn Ingi, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Fyrirspurnir og umræður.