Setning Búnaðarþings 2011
Í dag flutti Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ræðu við setningu Búnaðarþings.
Ennfremur veitti ráðherra í dag hin árlegu landbúnaðarverðlaunin 2011. Þau eru nú veitt í 15. sinn. Að þessu sinni voru verðlaunahafar tvenn félagasamtök. Félag ferðaþjónustubænda og félagsskapurinn Beint frá býli. Á myndinni er ráðherra ásamt þeim Sigurlaugu Gissurardóttur á Brunnhól formanni Félags ferðaþjónustubænda og Jóni Guðmundi Guðmundssyni formanni Beint frá býli og hluta af stjórnarmönnum félaganna.