Vitundarvakning á alþjóðavettvangi um mænuskaða
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fela utanríkis-, velferðar- og innanríkisráðherrum að kanna hvernig Ísland getur stuðlað að vitundarvakningu á alþjóðavettvangi vegna mænuskaða.
Sameinuðu þjóðirnar munu hefja sérstakt átak til að auka umferðaröryggi í maí næstkomandi. Átakinu er ætlað að standa í áratug og eru ríki heims hvött til að stuðla að úrbótum í vegamálum, aukinni notkun öryggisbúnaðar, hraðatakmörkunum svo og bættum viðbrögðum við umferðarslysum. Mænuskaðastofnun Íslands hefur unnið að vitundarvakningu um mænuskaða á alþjóðavettvangi og hafa stjórnvöld aðstoðað samtökin undanfarin ár á ýmsum vettvangi.