Tíunda Food and fun matarhátíðin
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra var ein af þeim sem opnuðu tíundu „Food and Fun“ matarhátíðina sem stendur til sunnudagsins 13. mars. Hátíðin er ein af skrautfjöðrunum í vetrarferðamennsku í Reykjavík og hefur fyrir löngu skapað sér alþjóðlegan sess.
Sextán veitingahús taka þátt í hátíðinni að þessu sinni. Fyrirkomulagið verður með nýjum hætti. Veitingahúsunum verður skipt í þrjá riðla. Stór dómnefnd mun borða á öllum veitingastöðunum og velja eitt veitingahús úr hverjum riðli. Gestakokkar veitingahúsanna þriggja munu svo keppa um titilinn „Matreiðslumeistari Food and Fun 2011“.