Nýsköpun rædd Iðnþingi
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra hélt ræðu á Iðnþingi sem að þessu sinni var haldið undir yfirskriftinni NÝSKÖPUN ALLS STAÐAR.
Boðskapur Katrínar var skýr; „Öflug nýsköpun er forsenda þess að við getum byggt hér upp sterkt, kraftmikið og gott samfélag. Endurnýjunarkrafa nútímans er einfaldlega svo sterk að samfélög sem ekki taka nýsköpun og frumkvöðlastarf alvarlega eru dæmd til að dragast aftur úr í samanburði þjóðanna.“