Umsækjendur um þrjú embætti hæstaréttardómara
Átta umsóknir bárust um þrjú embætti dómara við Hæstarétt Íslands, sem auglýst voru laus til umsóknar vegna tímabundinnar fjölgunar í réttinum, sbr. lög nr. 12/2011. Umsóknarfrestur rann út 14. mars síðastliðinn.
Umsækjendur eru í stafrófsröð:
- Benedikt Bogason, héraðsdómari og dómstjóri héraðsdóms Vesturlands
- Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
- Greta Baldursdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
- Helgi I. Jónsson, héraðsdómari og dómstjóri héraðsdóms Reykjavíkur
- Jónas Jóhannsson, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
- Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
- Sigrún Guðmundsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
- Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn