Hoppa yfir valmynd
21. mars 2011 Matvælaráðuneytið

12,6% fjölgun erlendra ferðamanna í febrúar ... ferðaárið 2011 fer vel af stað!

Tæplega 23 þúsund erlendir gestir heimsóttu Ísland í nýliðnum febrúarmánuði og er um að ræða 2.500 fleiri brottfarir en í febrúarmánuði 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 12,6% í febrúarmánuði á milli ára.

Janúar og febrúar lofa góðu fyrir ferðasumarið en þessa tvo mánuði  hafa 45 þúsund erlendir ferðamenn sótt Ísland heim sem er um 15 prósenta aukning frá árinu áður. Ríflega þriðjungsaukning  hefur verið í komu ferðamanna frá N-Ameríku, fjórungsaukning frá Mið-og Suður Evrópu, 13% aukning frá Norðurlöndunum og tæp 11% frá Bretlandi. Svipaður fjöldi hefur komið frá löndum sem flokkast undir ,,Annað”.  

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í febrúar frá Bretlandi eða 30,8% af heildarfjölda. Næstfjölmennastir voru Bandaríkjamenn eða 12,7% af heildafjölda, síðan komu Norðmenn (7,9%), Danir (6,4%), Þjóðverjar (5,7%), Frakkar (5,5%) og Svíar (5,2%).

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta