Hoppa yfir valmynd
28. mars 2011 Matvælaráðuneytið

Slá menntakerfið, háskólar og rannsóknastofnanir taktinn með atvinnulífinu?

Þriðji málfundur Vísinda- og tækniráðs um vísinda- og nýsköpunarkerfið verður haldinn mið. 30. mars kl. 15-17 í Náttúrufræðistofnun Íslands.

Vísinda- og tækniráð efnir til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- og nýsköpunarkerfið á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfirskriftinni; „Með gæði og ávinning að leiðarljósi".

Miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17 er boðað til næsta málfundar í Náttúrufræðstofnun Íslands, Urriðaholti, Garðabæ.
Slá menntakerfið, háskólar og rannsóknastofnanir taktinn með atvinnulífinu?

Inngangserindi:

Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands ehf.

Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika

Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa

Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur, Samtökum iðnaðarins

Fundarstjóri: Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs

Að loknu málþingi verða fyrirlestrar aðgengilegrir á vefsíðu Vísinda- og tækniráðs

Næsti málfundur:
Þekkingaryfirfærsla - stíflur eða opnar gáttir? -verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl kl. 15-17.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta