Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. í Reykjavík
Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar.
Hér að neðan eru upplýsingar um tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. á vegum sýslumannsembættisins í Reykjavík:- Skjól við Kleppsveg - þriðjudaginn 29. mars, kl. 13-15.
- Skógarbær við Árskóga - þriðjudaginn 29. mars, kl. 16-18.
- Seljahlíð, Hjallaseli 55 - miðvikudaginn 30. mars, kl. 16-18.
- Droplaugarstaðir við Snorrabraut - miðvikudaginn 30. mars kl. 15-18.
- Hlaðgerðarkot - fimmtudaginn 31. mars, kl. 15.30-17.30.
- Vík - fimmtudaginn 31. mars, kl. 14.00-15.00.
- Hjúkrunarheimilið Sóltún - fimmtudaginn 31. mars, kl. 13-16.
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot - fimmtudaginn 31. mars, kl. 15-17.
- Eir í Grafarvogi - föstudaginn 1. apríl, kl. 13-16.
- Kleppsspítali - föstudaginn 1. apríl, kl. 15-16.
- Hrafnista - laugardaginn 2. apríl, kl. 11-15.
- Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund - laugardaginn 2. apríl, kl. 11-15.
- Mörkin - laugardaginn 2. apríl, kl. 11-14.
- Hegningarhúsið við Skólavörðustíg - mánudaginn 4. apríl, kl. 16-17.
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi / Grensásdeild - fimmtudaginn 7. apríl, kl. 13-16 (Fossvogur) og 16.30-17.30 (Grensás).
- Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut - föstudaginn 8. apríl, kl. 14-17.