Nýsköpunarmiðstöðvarnar eru klakstöðvar fyrir fyrirtæki framtíðarinnar
Það hefur aldrei verið mikilvægara að ýta undir og efla nýsköpun og frumkvöðlastarf í atvinnulífinu. Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur sex frumkvöðlasetur og kemur að auki að rekstri fjögurra annarra. Tilgangurinn er að skapa sprotafyrirtækjum kjöraðstæður þar sem þau geta gengið að skapandi umhverfi, öflugu tengslaneti og faglegri ráðgjöf. Fyrirtækin sem hafa aðstöðu á frumkvöðlasetrunum eru um eitt hundrað og hafa fjölmörg þeirra náð mjög eftirtektarverðum árangri og vexti.
Frumkvöðlasetur sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur:
Kvosin | Lækjargötu 12, Reykjavík
Kvosin er rekin í samstarfi við Íslandsbanka á tveimur hæðum í húsnæði Íslandsbanka í Lækjargötu.
Keldnaholt | Grafarvogi, 112 Reykjavík
Frumkvöðlasetrið á Keldnaholti í Reykjavík byggir á áralangri reynslu og þekkingu sem gefur fyrirtækjum á setrum Nýsköpunarmiðstöðvar mikilvægt forskot.
Kím - Medical Park | Vatnagörðum 18, Reykjavík
Frumkvöðlasetur fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni og skyldum greinum sem rekið er í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, iðnaðarráðuneytið og Summit ehf.
Kveikjan | Strandgötu 11, Hafnarfirði
Kveikjan er rekin í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, Garðabæ og Sveitarfélagið Álftanes.
Fruma | Nýheimum, Hornafirði
Nýsköpunarmiðstöð Íslands tók við Frumunni í Nýheimum 2007.
Eyrin | Árnagötu 2-4, Ísafirði
Viðskiptasetrið hóf starfsemi í mars 2009.
Nýsköpunarmiðstöð kemur að rekstri Frumkvöðlasetursins á Ásbrú við Keflavíkurflugvöll. Þá kom miðstöðin að uppbyggingu frumkvöðlaseturs í Mosfellsbæ og Sprotans á Hvanneyri.