Það ku vera endalaus eftirspurn eftir sæbjúgum í Kína ... og Sæbýli hefur þróað aðferð til sæbjúgnaeldis sem markar tímamót!
Sæbýli ehf er nýsköpunarfyrirtæki sem byggir á grunni 20 ára þekkingarsöfnunar á sæeyrnaeldi. Fyrirtækið hefur þróað sjálfbært eldiskerfi (SustainCycle ) fyrir botnlæg sjávardýr eins og japönsk sæbjúgu, sæeyru eða ígulker.
SustainCycle tæknin miðar að því að að skapa bestu líffræðilegar aðstæður fyrir eldið á sama tíma og rekstrarkostnaði er haldið í lágmarki.Sjálfbærni kerfisins felst í því að eldisvökvinn er nýttur svo vel að einungis er þörf á að skipta út 20% af rúmmáli hans á sólarhring. Í þessu felst gífurlegur orkusparnaður.
Í júní á síðasta ári flutti félagið inn japönsk sæbjúgu til að gera tilraunir með í SustainCycle eldiskerfinu. Hafa þessar tilraunir gengið mjög vel og eru vonir bundnar við að Sæbýli takist að framleiða þessa tegund sæbjúgna í stýrðum aðstæðum, fyrst fyrirtækja í heiminum.
Markaður fyrir japönsk sæbjúgu er mjög góður og verðið mjög hátt. Eftirspurnin í Kína er gífurleg og alltaf að aukast vegna vaxandi velmegunar á þeim slóðum. En á sama tíma er búin að vera gengdarlaus ofveiði í heiminum sem leiðir til þess að minni afli berst á land. Eldi á sæbjúgum hefur líka gengið brösulega þar sem mest er notast við gamla tækni úr tjarnareldi fyrir rækjur.
Sæbýli er þessa dagana að setja upp þróunarsetur fyrir starfsemi sína á Eyrarbakka þar sem framtíðar heimili þess verður. Fyrirtækið mun selja sæbjúgun þurrkuð sem auðveldar allt sölu- og flutningsferlið.
Sæbýli ehf er styrkt af Tækniþróunarsjóði, Nýsköpunamiðstöð Íslands og Átaki til atvinnusköpunar.